27.9.2012 | 16:43
Kominn tími til
Þetta er frábært. Skaðinn sem "norræna velferðarstjórnin" undir hennar forystu hefur þegar valdið, er þó skelfilegur. Þessi ríkisstjórn hefur dýpkað kreppuna sem við lentum í(eða að einhverju leyti komum okkur í) verulega. Hún hefur nokkra mánuði til að valda enn meiri skaða. Það hefði ekki tekið okkur nema tvö ár að rétta töluvert úr kútnum, kannski skemur ef ekki hefði verið brugðið fæti fyrir atvinnulífið, að hætti vinstri stefnu.
Nú væntum við bara samskonar yfirlýsingar frá Steingrími J. Sigfússyni. Þar með væri þjóðin laus við mestu afglapa og skaðvalda íslenzkrar stjórmálasögu.
Samfylkingin og vinstrigrænir kusu yfir sig þessa forystu. Það sýnir glögglega að hvorugur þessara flokka hefur þann pólitíska þroska sem þeir þurfa að geta talizt stjórntækir.
Jóhanna ætlar að hætta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Kristján Þorgeir Magnússon
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fer ekki fram minningarathöfn??
Vilhjálmur Stefánsson, 27.9.2012 kl. 16:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.