Virkaði eftirlitið???

Vitnað er til niðurlags fréttarinnar: "Þá segir að í ljósi alvarleika málsins muni Isavia yfirfara öryggiseftirlit með starfssemi á svæðinu, þrátt fyrir að öryggiskerfið hafi virkað í þessu tilviki"

Hvílík vitleysa. Öryggikerfi yfuirvalda virkaði EKKI. Það var áhöfnin, starfsmenn flugrekanda sem varð mannanna vör, eftir að öryggiskerfi flugmála- og löggæzluyfirvalda hafði brugðist gjörsamlega.  Síðasti mögulegi hlekkurinn í öryggiskeðjunni, sem er verklag Icelandair, hélt eftir að allir hlekkir hennar sem eru á ábyrgð yfirvalda höfðu brugðist.  Þvílít yfirklór!


mbl.is Hælisleitendurnir vel skipulagðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

SAmmála þar sem ISAVIA klúðraði sínu máli... ICELANDAIR fær hinsvegar prik fyrir gott eftirlit og verklag...

Má til með að koma því að að það er ISAVIA en ekki löggæsla sem fer með gæsluhlutverk á verndarsvæðinu. Þeir eru því bara öryggisverðir en ekki lögregla þó þeir telji sig yfir aðra hafna oft á tíðum...

kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 9.7.2012 kl. 18:13

2 Smámynd: Kristján Þorgeir Magnússon

I stand corrected.

Takk fyrir ábendinguna Ólafur.  Það er athyglisvert, að einkafyrirtæki í samgöngum tryggi svokallaða flugvernd betur en yfirvöld, sem til þess ættu að vera bær (ISAVIA).

Kristján Þorgeir Magnússon, 9.7.2012 kl. 18:55

3 identicon

Já það verður að segjast að þetta er frekar furðuleg fullyrðing hjá ISAVIA að öryggiseftirlitið hafi virkað sem skyldi. Það er nokkuð augljóst að það gerði það ekki hvort sem þeir klifruðu yfir girðingu eða hvernig þeir komust inn. En þetta er mjög alvarlegt mál að þeir hafi komist inn á svæðið, hvað þá að komast inn í vél??

Annað áhugavert er, að á sama tíma og þetta gerist, er Keflavíkurflugvöllur eini flugvöllurinn í Evrópu þar sem allir farþegar þurfa enn að fara úr skónum við öryggisleit og málmleitarhliðin stillt talsvert viðkvæmari en á nokkrum öðrum flugvelli sem ég hef farið í gegnum og hef ég farið mjög víða. Vegna þess m.a. og hinna þungabrúnu tollara sem bíða manns við komu til landsins og telja sig yfir aðra hafna oft á tíðum finnst mér Keflavíkurflugvöllur einn sá leiðinlegasti að fara í gegnum í Evrópu.

Davíð (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 19:59

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég hef ekkert á móti öryggisgæslu og velti því fyrir mér, hvers vegna þessir menn voru fluttir til Reykjavíkur en ekki settir strax aftur um borð í skipið sem þeir komu með?

Hrólfur Þ Hraundal, 9.7.2012 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristján Þorgeir Magnússon

Höfundur

Kristján Þorgeir Magnússon
Kristján Þorgeir Magnússon
Flugstjóri með siglingadellu, BA gráðu í sálarfræði, framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun og viðskiptafræði og hef starfað töluvert sem kennari undanfarin ár. Aðhyllist frjálshyggju, enda sjálfstæðismaður. Ber virðingu fyrir íslenzkri náttúru og nýt þess að ferðast um hálendi sem láglendi landsins. Uppáhalds tilvitnanir: "Cogito, ergo sum" og "Sapere aude".

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 461

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband