Kjáni

Aumingja Össur.

Forsenda þess að Ísland geti gert samninga við önnur ríki er að við stöndum utan ESB.

Össur myndi aldrei standa í viðræðum við Rússland né nokkurt annað ríki ef við værum í ESB.  Öllum viðræðum Íslands við ríki utan ESB yrði þá stjórnað frá Brussel án aðkomu Íslendinga og án nokkurrar virðingar fyrir hagsmunum Íslands.

Lygarinn Össur, spillt samfylking og vinstrigrænar geðluðrur virðast þó geta haldið blekkingarleik sínum áfram, án gagnrýni frá uppgefinni og huglausri þjóð.


mbl.is Fríverslun rædd við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hámark niðurlægingar Alþingis

Ég verð sjaldan orðlaus.

Ég er það núna.  Þvílík vinstrigræn samspilling.

Guð hjálpi Íslandi.


mbl.is Mál höfðað gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúður

Við hverju er hægt að búast af tæplega grunnskólamenntuðum trúði?


mbl.is Svarar ekki fyrir fjárhaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslands ógæfu verður allt að vopni

Er þessari brjóstumkennanlegu mannleysu ekki ljóst, að hún talar ekki fyrir munn íslenzku þjóðarinnar.  Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar var skýr.  Þessi "fjármálaráðherra" hefur ekki samningsumboð til eins né neins.


mbl.is Steingrímur: Íslendingar munu borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt

"Hafa ekki fengið lögfræðiálitin í hendur"  Heldur þessi vitgranna fyrrum þjónustustúlka að hún geti endalaust talið þjóðinni trú um að hún komi af fjöllum í öllum málum og að forsætisráðuneytinu sé ókunnugt um það sem fjallað er um í öðrum ráðuneytum þessarar óheillaríkisstjórnar.  Auðvitað var Samspilltri ríkisstjórn undir forystu þjónuststúlkunnar Jóhönnu Sigurðardóttur og geðluðrunnar Steingríms J. Sigfússonar fullkunnugt um að gengistrygging væri ólögmæt.  Þau geta ekki afsakað sig með því að "málið hafi ekki komið inn á þeirra borð", sbr. orð Steingríms.  Það er ekki sérlega trúlegt að ráðherrar í ríkisstjórn séu ekki í daglegu talsambandi.
mbl.is Krafðist skýringa frá Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða flugfélag?

Svona lagað gerist stundum, því miður.  Það má þó ekki gleyma því, að Iceland Express er ekki flugfélag, heldur einungis farmiðasala.  Iceland Express ber því enga ábyrgð og hefur engar þær skyldur gagnvart farþegum sem raunveruleg flugfélög hafa.  Farmiðasalan Iceland Express selur farmiða með brezku flugfélagi sem heitir Astraeus.


mbl.is Ósáttur við Iceland Express
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsanlegt framhald málsins, hrossakaup

Fyrirferð Magma málsins eru komin út fyrir allan þjófabálk í þjóðfélagsumræðunni.  Vissulega er óásættanlegt að erlendir aðilar geti með vafasömum hætti svindlað sér inn í eignaraðild að fjöreggjum þjóðarinnar.  Málið er þó dálítið ómerkilegt.  Það er auðvelt fyrir stjórnvöld að takast á við það, sé það vilji þeirra.

Þetta mál er tilvalið til að valda titringi á stjórnarheimilinu.  Þingmenn VG ráðast á það sem Atli kallar ólögmætan samning með offorsi og hóta að láta af stuðningi við ríkisstjórnina.  Samfylkingunni er í lófa lagið að koma til móts við VG og ná sáttum, svo stjórnarsamstarfið lafi áfram.

Niðurstaðan verður sú, að VG fær sitt fram að því er Magma varðar.  Í staðinn leggjast vinstrigrænir hundflatir fyrir öðrum órum Samfylkingarinnar, eins og þeir eru vanir.  Þarmeð verður Samfylkingin búin að koma í veg fyrir að VG þvælist fyrir ESB draumórum fylkingarinnar.  Quid pro quo.

 


mbl.is Gæti ógnað ríkisstjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða samningi?

Skilja þingmenn og aðrir áhangendur Samfylkingarinnar það virkilega ekki, að aldrei verður um neinn samning milli Íslands og ESB að ræða?

Innganga Íslands í ESB snýst um AÐLÖGUN!  Ísland semur ekki um eitt eða neitt, heldur LAGAR SIG AÐ STJÓRNARSKRÁ OG REGLVERKI ESB.  Aðildarviðræður snúast um aðlögun, ekki samninga um frávik, það eru engin frávik í boði hjá ESB.

Vitakuld veit Samfylkingin þetta.  Hún kýs hinsvegar að blekkja þjóðina.  Það sem Samfylkingin veit þó ekki, er að henni tekst ekki að blekkja þjóðina.  Umræddur flokkur er þó svo veruleikafirrtur og svo úr tengslum við þjóðina að hann gerir sér ekki grein fyrir því.  Landráð Samfylkingarinnar verða aldrei liðin, hvað sem þingtrúðurinn Össur Skarphéðinsson malar um aukið fylgi við umsókn.  Hvað skyldi Össur hafa verið að drekka, þegar hann komst að þeirri niðurstöðu?

Samfylkingin er bezt geymd á Jótlandsheiðum, í öruggu skjóli ESB.  Kratar haf alltaf verið á móti sjálfstæði Íslands.

LANDRÁÐ MÁ EKKI LÍÐA.


mbl.is Meirihluti með góðum samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrelt

Á vegum sambærilegum við Reykjanesbraut í Evrópu eru hraðatakmörk yfirleitt 120 - 130 km./klst.  Ef 90 km./klst. er eðlilegur hámarkshraði þarna, væri 60 km./klst eðlilegur á öðrum íslenzkum þjóðvegum, þar sem aðeins ein akrein er í hvora átt og stundum tæplega það.  Breyttir jeppar og stórir bílar eiga erfitt með að mætast víðsvegar um landið á þjóðvegi númer eitt.  Oft er breidd vegarins einungis rúmlega ein og hálf akrein og flestar brýr austanlands einbreiðar.  Samt má aka á 90 km. hraða þarW00t
mbl.is Mikið um hraðakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkennileg forgangsröðun

Þetta er athyglisvert.  Lanhelgisgæzlan er í slíkum fjárhagskröggum, að hún getur ekki sinnt eftirlits- né björgunarhlutverki sínu.  Hún hefur ekki efni á að manna flugvélakost sinn.  Sjómenn búa við skerta öryggisþjónustu af þeim sökum.  Það þurfti að leigja Ægi og Sif til eftirlitsstarfa í útlöndum, svo ekki þyrfti að loka sjoppunni!

Svo nota menn þetta rándýra tæki í lögguleik og hraðamælingar með enhverri sveitalöggu norður i landi.


mbl.is Fylgst með umferð í Húnavatnssýslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristján Þorgeir Magnússon

Höfundur

Kristján Þorgeir Magnússon
Kristján Þorgeir Magnússon
Flugstjóri með siglingadellu, BA gráðu í sálarfræði, framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun og viðskiptafræði og hef starfað töluvert sem kennari undanfarin ár. Aðhyllist frjálshyggju, enda sjálfstæðismaður. Ber virðingu fyrir íslenzkri náttúru og nýt þess að ferðast um hálendi sem láglendi landsins. Uppáhalds tilvitnanir: "Cogito, ergo sum" og "Sapere aude".

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 496

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband