Staða Þorgeirðar Katrínar

Þorgeirður Katrín ætti líka að víkja.  Margir Sjálfstæðismenn og ég þeirra á meðal, ráku upp stór augu, þegar hún sat hjá í atkvæðagreiðslu á alþingi um ESB umsóknina.  Vissulega ber þingmönnum raunar að fylgja sinni sannfæringu við slíkar atkvæðagreiðslur.  Varaformaður sem hefur aðra sannfæringu og önnur sjónarmið en yfirgnæfandi meirihluti flokksmanna getur hinsvegar ekki verið í formanns- né varaformannsembætti.  Þessir aðilar verða að starfa í samræmi við það umboð sem þeir fá frá flokkssystkinum sínum.  Það gerði Þorgerður Katrín ekki í nefndri atkvæðagreiðslu.  Það var hennar réttur og skylda að fylgja sannfæringu sinni.  Stefna flokksins í Evrópumálum er skýr.  Treysti Þorgerður Katrín sér ekki til að fylgja henni, getur hún ekki verið í hlutverki varaformanns flokksins.  Henni bar því að segja af sér í kjölfar hegðunar sinnar við atkvæðagreiðsluna.  Stjórnmál eru alvörumál.  Ekki saumaklúbbur
mbl.is Uppnám vegna orða um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dolli dropi

Til sanns vegar má færa að þú sért ekki í hópi þeirra, sem æskilegir teljast til endurreisnar þjóðarskútunnar, hvað þá að geta talist unnið hræi hennar gagn.

Þau sjónarmið, sem fram koma í þessari færslu "symbólisera" viðbjóð þann, sem orðið hefur þjóðinni að aldurtila, í yfirfærðri merkingu meint. 

Þjónkun, yfirlýstur undirlægjuháttur og aumingjaskapur. Allt við fáránlega flokkslínu lokunar og drumbsskapar.

Lygi á lygi ofan þar sem enginn er sjálfum sér samkvæmur.

Gleymdu þér !

Dolli dropi, 12.4.2010 kl. 19:14

2 Smámynd: Örn Ingólfsson

Já alveg rétt þetta spillingarpakk sem kom að þessum málum á ALLT AÐ VÍKJA AF ALÞINGI ENGINN UNDANSKILINN. Það vantaði ekki talsmátann á Þorgerði á Alþingi eins og hún væri bara með allt sitt á hreinu, en hvað kom svo í ljós nú bara burtu með þetta fólk strax af Alþingi nú  almenningur hefur nú verið rekinn fyrir smá yfirsjón úr vinnu  en það virðist vera eitthvað annað með spillingarpakkið skrítið? Ennfremur ætti Bjarni Ben að segja af sér þingmennsku því eg veit ekki betur en að honum og hans slekti hafi verið hampað af bönkunum. En réttlæti strax burtu með þetta spillingarpakk af Alþingi okkar Íslendinga fyrr fær Íslenska Þjóðin ekki virðingu utanlands  því þetta má ekki halda áfram á Alþingi lengur bölvað spillingarpakkið!

Örninn

Örn Ingólfsson, 12.4.2010 kl. 19:15

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Þorgerður ætti að fara ? Er nokkurt val ?

Lánastaða þorgerðar hjábönkunum................. Þorgerður K. Gunnarsdóttir 1.683 milljónir

hilmar jónsson, 12.4.2010 kl. 19:18

4 identicon

Þakka þér fyrir athyglisvert inlegg Dolli.  Ég verð þó að viðurkenna, að mér er ómögulegt að skilja um hvað þú ert að tala

Kristján Þorgeir Magnússon (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 19:22

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hvað gerum við nú? sitjum heima eins og venjulega og látum þetta pakk ráða för?

Sigurður Haraldsson, 13.4.2010 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristján Þorgeir Magnússon

Höfundur

Kristján Þorgeir Magnússon
Kristján Þorgeir Magnússon
Flugstjóri með siglingadellu, BA gráðu í sálarfræði, framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun og viðskiptafræði og hef starfað töluvert sem kennari undanfarin ár. Aðhyllist frjálshyggju, enda sjálfstæðismaður. Ber virðingu fyrir íslenzkri náttúru og nýt þess að ferðast um hálendi sem láglendi landsins. Uppáhalds tilvitnanir: "Cogito, ergo sum" og "Sapere aude".

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband